Persónutryggingar
Nýja vátryggingaþjónustan ehf. hefur frá upphafi miðlað öllum tegundum persónutrygginga svo sem líf- og sjúkdómatryggingum og einnig slysa-og sjúkratyggingum bæði frá innlendum og erlendum félögum.
Líf- og Sjúkdómatryggingar
Samkvæmt lögum um miðlun vátrygginga, gera ráðgjafar Nýju vátryggingaþjónustunnar þarfagreiningar og veita ráðgjöf til viðskiptavina m.a. út frá fjölskyldustærð og skuldastöðu.
Líftrygging: Getur aldrei bætt þann skaða sem fjölskylda verður fyrir við fráfall ástvinar en hún getur
dregið úr þeim fjárhagslegu áhrifum sem dauðsfallið veldur.
Sjúkdómatrygging: Veitir fjárhagslegt öryggi tryggingartaka og fjölskyldu hans komi upp alvarleg veikindi.
Bætur úr líf- og/eða sjúkdómatryggingum eru ávallt skattfrjálsar.
Iðgjöld geta verið annað hvort aldurstengd eða jafnaðariðgjöld:
- Aldurstengd iðgjöld henta einkar vel ungu fólki þar sem iðgjaldið er mun lægra í upphafi en fer svo hækkandi með aldrinum.
- Jafnaðariðgjöld eru metin út frá aldri tryggingartaka og helst óbreytt þann samningstíma sem hann velur. Jafnaðariðgjöld geta verið talsvert hagkvæmari en aldurstengd iðgjöld til lengri tíma litið. Mjög mikilvægt er að skoða þessi mál vel og fá faglega ráðgjöf.
Skilmálar líftryggingar Friends Provident
https://www.fpinternational.com/
Skilmálar sjúkdómatryggingar Friends Provident:
https://www.fpinternational.com/
Skilmálar líftryggingar Varðar líf:
https://vordur.is/media/1074/l-1-liftrygging.pdf
Skilmálar sjúkdómatryggingar Varðar líf:
https://vordur.is/media/1075/l-2-sjukdomatrygging.pdf
Skilmálar líftryggingar Allianz:
https://www.allianz.is/liftryggingar
Slysa- og sjúkratryggingar
Með orðinu slys er átt við skyndilegan utanaðkomandi atburð sem veldur tjóni á líkama þess vátryggða og gerist án vilja hans.
Bætur úr slysatryggingum eru skattskyldar en ekki ber að greiða skatt af örorkubótum.
- Almennar slysatryggingar taka fyrst og fremst á tjóni vegna slysa sem hinn vátryggði verður fyrir.
- Slysa- og sjúkratyggingar taka á tjónum sem verða vegna slysa og/eða veikinda þess sem vátryggður er.
Skilmálar slysatryggingar Allianz:
http://allianz.is/desktopdefault.aspx/tabid-46/26_read-41/
Skilmálar almennrar slysatryggingar Varðar:
http://www.vordur.is/asset/4865/S-1%20Almenn%20slysatrygging
Skilmálar slysa og sjúkratryggingar Varðar:
http://www.vordur.is/asset/4866/S-2%20Sj%C3%BAkra%20og%20slysatrygging
Skilmálar starfstryggingar Hagals / Lloyds: